Ásvallagata 5
Ásvallagata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1134
5. október, 2021
Frestað
Fyrirspurn
Steinunn Hauksdóttir, Ásvallagata 5, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir svölum á 2. hæð suðurhliðar, gera nýja hurð í stigahús, breyta innra skipulagi og koma fyrir nýjum þakgluggum í risi á húsi nr. 5 á lóð nr. 5 við Ásvallagötu. Minnkun vegna inndreginna svala í risi: 3,1 ferm. Stærð eftir breytingu: 337,2 ferm. , 940,1 rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 14. júní 2021 og yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 8. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. október 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 3, 7 og Brávallagötu 18 frá 21. september 2021 til og með 19. október 2021. Erindi fylgir samþykki hagsmunaaðila dags. 1. október 2021.
Svar

Frestað.
Lagfæra skráningu.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101280 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007319