Ásvallagata 5
Ásvallagata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1136
19. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Steinunn Hauksdóttir, Ásvallagata 5, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir svölum á 2. hæð suðurhliðar, gera nýja hurð í stigahús, breyta innra skipulagi og koma fyrir nýjum þakgluggum í risi á húsi á lóð nr. 5 við Ásvallagötu. Minnkun vegna inndregna svala í risi: 3,1 ferm. Stærð eftir breytingu: 337,2 ferm. , 940,1 rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 14. júní 2021 og yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 8. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. október 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 3, 7 og Brávallagötu 18 frá 21. september 2021 til og með 19. október 2021. Erindi fylgir samþykki hagsmunaaðila dags. 1. október 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101280 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007319