Hraunbær 133
Hraunbær 133
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1121
29. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
490916-0670 Bjarg íbúðafélag hses., Kletthálsi 1, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að byggja 3-4 hæða fjölbýlishús með 20 íbúðum í tveimur stigahúsum, mhl. 03, og 5 íbúða raðhús á tveimur hæðum,mhl. 02 á lóð nr. 133 við Hraunbæ. Stærðir: Mhl. 02: 530. ferm., 1.765.8 rúmm. Mhl. 03: 1.909.7 ferm., 6.097.3 rúmm. A-og B-rými samtals: 2.017.7 ferm. Erindi fylgir teikningaskrá dags. 1. júní 2021, greinargerð hönnuðar dags. 16. júní 2021, hljóðvistarskýrsla gerð af Myrru hönnunarstofu dags.29. apríl 2021 og greinargerð um brunahönnun unnin af verkfræðistofunni Örugg ehf. eitt sett fyrir hvorn matshluta.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.