Hraunbær 133
Hraunbær 133
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1121
29. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
490916-0670 Bjarg íbúðafélag hses., Kletthálsi 1, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að byggja 4-5 hæða fjölbýlishús með 39 íbúðum á byggingarreit A1, mhl.01, það fyrsta af þremur fjölbýlishúsum á lóð nr. 133 við Hraunbæ. Stærðir: 3.239.9 ferm., 10.068.2 rúmm. B- rými: 129.6 ferm. Erindi fylgir hæðablað 4.341.1 útg. B2 dags.12. október 2020, teikningaskrá dags. 16. mars 2021, greinargerð hönnuðar dags. 16. júní 2021, greinargerð um brunavarnir unnin af verkfræðistofunni Örugg dags. 12. mars 2021 og greinargerð um hljóðvist unnin af Myrru hönnunarstofu dags. 15. mars 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.