Jöfursbás 9
Jöfursbás 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1118
8. júní, 2021
Frestað
Fyrirspurn
490519-2460 HOFFGB14 ehf., Skipholti 50d, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með risi, að hluta steinsteypt og að hluta úr forsmíðuðum einingum, einangrað að utan og klætt báruðu og sléttu áli, með 14 íbúðum ásamt hjólaskýli sem verða mhl. 01 og mhl. 02 og verður fyrsti áfangi bygginga á lóð nr. 9 við Jöfursbás. Erindi fylgir hljóðvistargreinargerð frá Mannvit dags. 18. maí 2021 og greinargerð um brunavarnir frá Mannvit dags. 18. maí 2021. Stærð, mhl. 01, A-rými: 971,1 ferm., 3.466,8 rúmm. B-rými: 91,3 ferm. Samtals: 1.062,4 ferm. Mhl. 02, A-rými: 22,9 ferm., 80,2 rúmm.
Svar

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228388 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131061