Jöfursbás 9
Jöfursbás 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1136
19. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
490519-2460 Hverfið Gufunes ehf., Skipholti 50d, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með risi, að hluta steinsteypt og að hluta úr forsmíðuðum einingum, einangrað að utan og klætt báruðu og sléttu áli, með 14 íbúðum, mhl. 01, ásamt hjólaskýli, mhl. 02, á lóð nr. 9A við Jöfursbás. Erindi fylgir hljóðvistargreinargerð frá Mannvit dags. 18. maí 2021, greinargerð um brunavarnir frá Mannvit dags. 18. maí 2021 og yfirlýsing um deilibíla dags. 15. september 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 18. júní 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. september 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2021. Stærð, mhl. 01, A-rými: 1.085,5 ferm., 3.466,8 rúmm. B-rými: 91,3 ferm. Samtals: 1.060,8 ferm. Mhl. 02, A-rými: 22,9 ferm., 80,2 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228388 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131061