Krókháls 7
Krókháls 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1115
18. maí, 2021
Frestað
Fyrirspurn
521115-1650 K7 ehf., Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja tvö einnar hæðar skrifstofuhús úr krosslímdum timbureiningum ásamt þremur auglýsingaskiltaturnum á lóð nr. 7 við Krókháls. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020. Erindi fylgja útreikningar á varmatapsramma dags. 19. mars 2021, greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett, greinargerð um brunavarnir frá Örugg, verkfræðistofa dags. 23. mars 2021 og bréf hönnuðar dags. 14. apríl 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. maí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2021. Stærð, mhl. 01: 139,8 ferm., 378,4 rúmm. Mhl. 02: 248,2 ferm., 673,4 rúmm. Samtals: 388 ferm., 1.051,8 rúmm.
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2021 og til athugasemda.

110 Reykjavík
Landnúmer: 197826 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115770