Fyrirspurn
521115-1650 K7 ehf., Krókhálsi 11, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvö einnar hæðar skrifstofuhús úr krosslímdum
timbureiningum á lóð nr. 7 við Krókháls.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020.
Erindi fylgja útreikningar á varmatapsramma dags. 19. mars 2021, greinargerð
hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett, greinargerð um brunavarnir frá
Örugg, verkfræðistofa dags. 23. mars 2021 og bréf hönnuðar dags. 14. apríl 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. maí 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2021.
Stærð, mhl. 01: 139,8 ferm., 378,4 rúmm.
Mhl. 02: 248,2 ferm., 673,4 rúmm.
Samtals: 388 ferm., 1.051,8 rúmm.