Fyrirspurn
Guðrún Margrét Jóhannesdóttir, Stigahlíð 61, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að stærðir hafa verið
uppfærðar, kalt þak hefur verið byggt ofan eldra þak bakhúss, mhl. 01, og því breytt í
íbúðarrými, einnig hefur aðalinngangur verið færður til, stiga í forhúsi og innra skipulagi
breytt í íbúðarhúsi, mhl. 02, á lóð nr. 24A við Baldursgötu.
Stækkun:
Mhl. 01, íbúðarhús: 7.9 ferm., 12.1 rúmm.
Mhl. 02, bakhús: 13.9 ferm., 42.1 rúmm.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 15. mars 2021 og skýrsla húsaskoðunar dags. 6. maí
2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 19. apríl 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. ágúst 2021 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2021.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Baldursgötu 24 og 26 og Bragagötu
29a og 31/31b frá 15. júlí 2021 til og með 16. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust.
Lagður var fram tölvupóstur Guðlaugar Teitsdóttur dags. 16. júlí 2021 þar sem ekki eru
gerðar athugasemdir við erindið.