Fyrirspurn
Benedikt Skúlason, Bárugata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta og hækka mæni og útveggi á þakrými þannig að fáist
portbyggð hæð í risi í húsi á lóð nr. 14 við Bárugötu.
Stækkun: 36.3 ferm., 181.9 rúmm.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. október 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. nóvember 2020
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. júlí 2021 fylgir
erindi ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021. Erindi var grenndarkynnt
fyrir hagsmunaaðilum að Bárugötu nr. 12, 13, 15 og 16 og Ránargötu 11, 13 og 15 frá
29. janúar 2021 til og með 7. apríl 2021. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Heiður
Agnes Björnsdóttir f.h. eiganda og íbúa að Ránargötu 13 dags. 7. júní 2021.