Fyrirspurn
540909-0910 Feier ehf., Tjarnargötu 28, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, mhl.02, til suðausturs við núverandi hús,
mhl.01, 4-hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum, geymslum í kjallara og verslunar- og
þjónusturýmum á jarðhæð á lóð nr. 60 við Snorrabraut.
Stækkun: 3.781,6 ferm., 13.178,5 rúmm.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.193.4 dags. 10. september 2019, hæðablað teiknað í
nóvember 2020, skýrsla verkfræðistofunnar Örugg um brunahönnun dags. 2. mars 2021
og útgáfa V03 dags. 9. apríl 2021, ódagsett tafla yfir útreiknað leiðnitap byggingarhluta,
ódagsett 4. útgáfa hljóðvistarskýrslu Hljóðtæknilausna.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021.