Snorrabraut 60
Snorrabraut 60
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1123
13. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
540909-0910 Feier ehf., Tjarnargötu 28, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, mhl. 02, til suðausturs við núverandi hús, mhl. 01, 4-hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum, geymslum í kjallara og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæð á lóð nr. 60 við Snorrabraut. Stækkun: 3.781,6 ferm., 13.178,5 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.193.4 dags. 10. september 2019, hæðablað teiknað í nóvember 2020, skýrsla verkfræðistofunnar Örugg um brunahönnun dags. 2. mars 2021 og útgáfa V03 dags. 9. apríl 2021, ódagsett tafla yfir útreiknað leiðnitap byggingarhluta, ódagsett 4. útgáfa hljóðvistarskýrslu Hljóðtæknilausna. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.Með
vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum
dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan
til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á
byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október
2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að
vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað.
Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð
skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102537 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018568