Kuggavogur 2
Kuggavogur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1104
23. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
710817-0810 ÞG hús ehf., Lágmúla 7, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja fimm steinsteypt fjölbýlishús, einangruð og klædd að utan með 91 íbúð á sameiginlegum bílakjallara fyrir 85 bíla á lóð nr. 2 við Kuggavog. Erindi fylgir brunahönnun frá Mannvit dags. 25. janúar 2021, og hljóðvistarskýrsla dags. 26. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2021. Stærð, A-rými: 12.453,5 ferm., 38.560,9 rúmm. B-rými: 862,7 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 225189 → skrá.is
Hnitnúmer: 10120968