Laufásvegur 50
Laufásvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1104
23. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Hlynur Hreinsson, Laufásvegur 50, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að stækka anddyrisviðbyggingu, byggja einnar hæðar viðbyggingu garðmegin, hækka þak og breyta kvistum, gera þaksvalir á báðum viðbyggingum, endureinangra hús að innan og breyta innra skipulagi og einangra og klæða skúr að utan og færa innkeyrslu/bílastæði suður fyrir hús á lóð nr. 50 við Laufásveg. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020, bréf hönnuðar dags. 24. nóvember 2020, samþykki næstu nágranna áritað á skissur, umsögn Minjastofnunar dags. 3. nóvember 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. desember 2020. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2020, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. desember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2021 fylgir erindi og bréf skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 49, 51 og 53-55, Laufásvegi 48, 48A, 52 og 54, Fjólugötu 19A og 19B og Njarðargötu 7 og 9 frá 19. janúar 2021 til og með 16. febrúar 2021. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Flosa Kristjánssonar f.h. húseigenda að Laufásvegi 48 dags. 21. janúar 2020 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið. Stækkun: 80 ferm., 241,8 rúmm. Samtals á lóð eftir stækkun: 250,5 ferm., 750,7 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102193 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015925