Arkarvogur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Byggingarfulltrúi nr. 1102
Samþykkt
Fyrirspurn
710817-0810 ÞG hús ehf. , Lágmúla 7, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054742 þannig að frágangi og gerð klæðninga útveggja er breytt í slétt og bárað ál, landslag og sérnotafletir á lóð eru breyttir, bað og þvottur sameinað í hluta íbúða, innréttingar og skápar breytast víða, skráningarnúmer og -tafla hafa verið uppfærð, svölum er hliðrað á austurhlið byggingar 1A og skábrautir í landslagi eru nú léttbyggðar við fjölbýlishús nr. 2-15 á lóð nr. 2 við Arkarvog. Erindi fylgir yfirlit breytinga og bréf hönnuðar dags, 12. janúar 2021. Minnkun: 124,7 ferm., 435 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105601 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001570
Síðasta markaðsverð
81.500.000 kr.
Fjölbýli · 106 m² · 03.01.2025
Kaupskrá 14 eignir
81.500.000 kr. 03.01.2025
Fjölbýli · 106 m² · 2 herb. · bygg. 2022 · HMS
79.000.000 kr. 04.10.2024
Fjölbýli · 102 m² · 2 herb. · bygg. 2022 · HMS
114.900.000 kr. 12.10.2022
Fjölbýli · 170 m² · 3 herb. · bygg. 2022 · HMS
79.900.000 kr. 07.09.2022
Fjölbýli · 102 m² · 2 herb. · bygg. 2022 · HMS
59.900.000 kr. 12.08.2022
Fjölbýli · 62 m² · 1 herb. · HMS
… og 9 eignir til viðbótar