Akurgerði 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1102
Samþykkt
Fyrirspurn
Simon David Knight, Akurgerði 15, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að færa og stækka kvisti og setja svalalokanir á svalir í risi til suðurs, bæta við þakgluggum á norðurþekju, setja nýtt þak og skyggni yfir anddyri og kjallaratröppur, síkka glugga úr borðstofu og gera þar þrefalda hurð út á nýjan sólpall og tröppur af honum niður í garð auk smávægilegra breytinga á innra skipulagi í risi í sambýlishúsi á lóð nr. 15 við Akurgerði. Erindi fylgir samþykki eigenda húss nr. 17 á afrit af uppdrætti dags. 5. nóvember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Akurgerði 13, 19, 21 og 23 frá 2. desember 2020 til og með 31. desember 2020. Engar athugasemdir bárust. Stækkun 0.8 ferm., 2.2 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006409
Síðasta markaðsverð
14.150.000 kr.
Einbýli · 143 m² · 31.07.2014
Kaupskrá 2 eignir
14.150.000 kr. 31.07.2014
Einbýli · 143 m² · 4 herb. · bygg. 1978 · HMS
35.500.000 kr. 26.08.2011
Fjölbýli · 114 m² · 2 herb. · bygg. 1961 · HMS