Bjargargata 1
Bjargargata 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1092
24. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
680515-1580 Gróska ehf., Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051881 þannig að flóttaleiðum og innra skipulagi skrifstofurýmis fyrir allt að 220 starfsmenn og 70 gesti er breytt á 2. hæð í norður- og vesturhluta verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á lóð nr. 1 við Bjargargötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af innlögðu teikningasetti og A3 afriti af teikningum samþykktum 7. febrúar 2017, teikningaskrá síðast breytt 5. nóvember 2020 ásamt bréfi frá hönnuði dags. 5. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits
ríkisins.

102 Reykjavík
Landnúmer: 220421 → skrá.is
Hnitnúmer: 10104615