Bátavogur 1
Bátavogur 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1092
24. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
490916-0670 Bjarg íbúðafélag hses., Kletthálsi 1, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057214 þannig að íbúðarhúsi verður skipt í tvo matshluta, mhl.01 og mhl.02, rýmisnúmer eru uppfærð og núverandi djúpgámagerði skipt upp í tvö aðskilin djúpgámagerði, mhl.03 og mhl.04, á lóð nr. 1 við Bátavog Erindi fylgir lóðauppdráttur dags. 8. maí 2020 og yfirlit breytinga á teikningum dagsettum 28. janúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. nóvember 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Umsækjandi láti gera mæliblað í samræmi við samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105600 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122653