Spurt er hvort leyft yrði að síkka glugga á fjórðu og fimmtu hæð, byggja svalir á suðurhlið og innrétta tvær íbúðir, eina á fjórðu hæð og hina á fimmtu hæð fjöleignahússins á lóðinni nr. 16 við Tryggvagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. desember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3. desember 2012.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.