Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu, einangrað að innan og með bárujárnsklæddu timburþaki þriggja hæða og þriggja íbúða fjölbýlishús með undirgangi og kvöð um umferð á hús á lóð nr. 32 á 1. hæð á lóð nr. 34 við Baldursgötu. Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. yfirlitsblað, undanþága veitt. Stærðir: 1. hæð 54,3 ferm., 2. hæð 63,4 ferm., 3. hæð 37,6 ferm. Samtals 155,3 ferm., 504,3 rúmm. B-rými 13,4 ferm. Gjald kr. 8.500 + 42.865
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna nýtingarhlutfalls.