Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu, einangrað að innan og með bárujárnsklæddu timburþaki fjögurra hæða og sjö íbúða fjölbýlishús með kvöð um umferð á baklóð frá húsi á lóð nr. 34 á lóð nr. 32 við Baldursgötu. Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. yfirlitsblað, undanþága veitt. Stærðir: 1. hæð 145 ferm., 2. hæð 140,8 ferm., 3. hæð 111,4 ferm., 4. hæð 55,3 ferm. Samtals 452,6 ferm., 1.363,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 115.872
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna nýtingarhlutfalls.