Sótt er um leyfi til að innrétta fundar- og samkomusal á þriðju hæð í flokki ?, fjarlægja hringstiga af teikningu sem ekki var settur upp og gera eignaskiptayfirlýsingu fyrir atvinnuhúsnæðið á lóð nr. 4 við Lágmúla. Bréf frá T.R - Ráðgjöf sf. dags. 14. feb. 2010 fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. mars 2010. Gjald kr. 7.700