Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki II á neðri hæð (mhl 01) og í bakhúsi (mhl 02) verslunarhússins á lóð nr. 8 við Lækjargötu. Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar, dags. 27. janúar, umsögn Minjasafns Reykjavíkur og bréf hönnuðar, dags. 3. febrúar 2010. Einnig fylgir skýrsla um hljóðvist, dags. 16. febrúar 2010. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 12. febrúar 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.