Manning ehf sækir þann 05.01.2010 um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Tjarnarvöllum 2 skv. uppdrætti arkitektur.is. Erindið var grenndarkynnt 11.01.2010. Athugasemdafresti lauk 8.2.2010. Ein athugasemd barst. Synjað á fundi 246. Lagt fram bréf frá umsækjanda dags. 15.03.2010 ásamt nýjum uppdrætti þar sem brugðist er við athugasemdum skipulags- og byggingarráðs og myndum af sambærilegum útfærslum.
Svar
Skipulags- og byggingarráð telur nýja útfærslu mun betri en þá sem áður var sýnd og mun taka endanlega afstöðu þegar nýr deiliskipulagsuppdráttur með frekari skýringum liggur fyrir.