Manning ehf sækir þann 05.01.2010 um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Tjarnarvöllum 2 skv. uppdrætti arkitektur.is. Erindið var grenndarkynnt 11.01.2010. Athugasemdafresti lauk 8.2.2010. Ein athugasemd barst. Synjað á fundi 246. Lagt fram bréf frá umsækjanda dags. 15.03.2010 ásamt nýjum uppdrætti þar sem brugðist er við athugasemdum skipulags- og byggingarráðs og myndum af sambærilegum útfærslum. Skipulags- og byggingarráð óskaði 30.03.2010 eftir nýjum skipulagsuppdrætti.
Svar
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.