Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 7. október 2008 og fullbúið 7. apríl 2009. Skipulags- og byggingarráð gerði 03.11.2009 eigendum og byggingarstjóra skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. - Komið hefur í ljós að eigendur eru einungis búnir að stúka af eitt bil og fá þar af leiðandi ekki fokheldisvottorð. En þeir eru samt búnir að þinglýsa eignaskiptasamningi og skuldbinda sig þar með að skipta húsinu í 8 eignir. Skipulags- og byggingarfulltrúi leitaði álits lögfræðings skipulags- og byggingarsviðs, sem nú liggur fyrir. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 09.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan tveggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan tveggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203404 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097608
Síðasta markaðsverð
60.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · 27.08.2012
Kaupskrá 8 eignir
60.000.000 kr. 27.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · HMS
60.000.000 kr. 27.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · HMS
60.000.000 kr. 27.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · HMS
60.000.000 kr. 27.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · HMS
60.000.000 kr. 27.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 1205 m² · HMS
… og 3 eignir til viðbótar
Deiliskipulag
uppfærður uppdráttur
Samþykkt 11.04.2011 · Deiliskipulag. Veruleg breyting