Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 168
Annað
Fyrirspurn
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Ræktunarsamband Flóa/Skeið ehf. sækir um leyfi til að setja niður starfsmannagáma. Helstu stærðir eru; 28,8² & 84,7m³
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa fyrir byggingaráformum og er það mat skipulags- og byggingarfulltrúa að málið fái afgreiðslu á grundvelli 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga er varðar að heimilt sé að falla frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt

Deiliskipulag
Víkurheiði
Samþykkt 22.12.2008 · Deiliskipulag. Nýtt DSK