Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 168
Annað
Fyrirspurn
Anne Bruun Hansen hönnuður fyrir hönd Helga Axel Davíðssonar sækir um leyfi til að byggja viðbygigngu. Helstu stærðir eru; 39m²
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar og er það mat skipulags- og byggingarfulltrúa að málið fái afgreiðslu á grundvelli 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga er varðar að heimilt sé að falla frá kröfum um grenndarkynningu þegar um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að skráningartafla á excel formatti og aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnaeftirliti brunavarna Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 162905 → skrá.is
Hnitnúmer: 10062041