Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 168
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Byggingafélag Suðurlands ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli. Helstu stærðir eru; 403,5m² & 1.725,7m³ Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt

801 Selfoss
Landnúmer: 207007 → skrá.is
Hnitnúmer: 10110389
Deiliskipulag
Tjarnabyggð í Kaldaðarnesi
Samþykkt 12.04.2006 · Deiliskipulag. Nýtt DSK