Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 1. Merkisteinn I. L166113 - Deiliskipulag - 4 stakstæð hús. Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Merkisteinsvalla 1 á Eyrarbakka innan íbúðarsvæðis ÍB45. Í skipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir fjögur stakstæð hús á tveimur hæðum með mænisþaki eins og nánar er gert grein fyrir innan skipulags- og byggingaskilmála deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum deiliskipulag fyrir Merkistein I, L166113 með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að kynna aðliggjandi lóðarhöfum framlagða skipulagstillögu.