Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Bæjarráð nr. 157
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá aukaaðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) og stjórnar SOS frá 16. janúar sl. liður 5a. Tillögur að breytingum á samþykktum. Afgreiðsla aukaaðalfundarins: Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum SOS skv. a. lið 5. dagskrárliðar fundarins er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða og samþykktunum vísað til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga SOS sem taka þurfa breyttar samþykktir fyrir í tveimur umræðum áður en þær eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breytingar á samþykktum SOS og leggja til við bæjarstjórna að samþykkja reglurnar og taka þær til samþykktar í tveimur umræðum.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framkomnar tillögur að breytingu á samþykktum SOS og taka þær til samþykktar í tveimur umræðum. Samþykkt