Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson, deildarstjóri frístundaþjónustu fór yfir stöðu mála í frístundaakstrinum. Fram kom hjá Gunnari að verið væri að stofna spretthóp sem samanstendur af hagaðilum í samfélaginu. Hópnum er ætlað að leita leiða til úrbóta á frístunda- og almenningsakstri fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Einnig er horft til breytinga á skipulagi þjónustunnar í nýju akstursútboði sem tekur gildi haustið 2026. Bæjarráð þakkar Gunnari fyrir greinagóð svör. Samþykkt