Ari Björn Thorarensen, D-lista og Bragi Bjarnason, D-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingu á svæði M10 (Tryggvagata) í aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, með vísan til 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í samræmi við tillögu skipulagsnefndar Árborgar, en um óverulega breytingu er að ræða. Breytingarnar fela í sér að fallið verði frá því að kröfur séu settar um stúdentaíbúðir og verslanir á jarðhæð bygginganna auk þess sem fjöldi íbúða er aukinn um 5 íbúðir, úr 40 í 45.
Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna og senda að nýju til samþykktar hjá Skipulagsstofnun.