Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 65
Annað
Fyrirspurn
Tillaga UNGSÁ um að stofnað verði menningarhús í Árborg.
Svar

Sunneva Dís Eiríksdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að Árborg stofni menningarhús í Árborg.

Við sölu menningarsalarins er kjörið tækifæri að skoða möguleika á að koma á legg menningarhúsi eða viðburðarsal í sveitarfélaginu.

Það vantar stað þar sem hægt væri að halda alls konar viðburði. Menningarhús gæti meðal annars nýst fyrir tónleika, námskeið, fyrirlestra, leik-, söng-, dans- og aðrar listsýningar, störf kóra, skóla og félagsmiðstöð. Til dæmis þá setur Fjölbrautaskóli Suðurlands upp söngkeppni NFSu á hverju ári og þurfa að fá utanaðkomandi aðila til þess að setja upp svið en með menningarhúsi gæti nemendafélagið nýtt sér aðstöðuna. Það myndi hagnast bæði ungmennunum í Árborg sem eru í námi við skólann og um leið styðja við rekstur menningarhússins.

Það myndi lífga upp á menningarlíf sveitarfélagsins og býr til tækifæri fyrir alls konar menningarstarf. Með menningarhúsi er frekar tækifæri fyrir aðkeypta afþreyingu og þurfa þá íbúar ekki alltaf að fara til Reykjavíkur eða annarra staða til þess að njóta menningar og viðburða. Menningarsalur hefur þann möguleika að vera hornsteinn menningarlífs nærsamfélagsins okkar innan sveitarfélagsins Árborgar. Þetta myndi styrkja ímynd Árborgar, efla samheldni og gera sveitarfélagið að enn betri stað til þess að búa í.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til bæjarráðs.