Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttur, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista.
Fundarhlé er tekið kl. 18:05.
Fundi fram haldið kl. 18:13.
Fjárhagsáætlun 2026 og 3ja ára áætlun eru bornar undir atkvæði og samþykktar með 7 atkvæðum; 6 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá.
Bragi Bjarnason, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Hér liggur fyrir samþykkt fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árin 2026-2029. Það er bæjarfulltrúum D- og Á-lista gleðilegt að samþykkja fjárhagsáætlun sem sýnir áframhaldandi bata í rekstri og ávinning til íbúa. Áætlunin endurspeglar árangur síðustu ára og hvernig ábyrgur rekstur getur skapað svigrúm til lækkunar gjalda og álaga.
Núverandi meirihluti leggur áherslu á að tryggja grunnþjónustu við íbúa á öllum aldri og forgangsraða í þágu farsældar og velferðar. Lántaka er í lágmarki, fasteignafjöld lækka, frístundastyrkur hækkar um 25% og áfram er fjárfest í framkvæmdum mikilvægra innviða samfélagsins.
Árangur undanfarinna ára og viðsnúningur í rekstri sveitarfélagsins staðfestir að stefna bæjarstjórnar er að virka. Við stöndum við loforðin og núna þegar svigrúm er til staðar eru gjöld og álögur lækkaðar á íbúa og fyrirtæki. Álögur sem skila yfir 330 milljónum í aukna ráðstöfun fyrir íbúa og fyrirtæki í Árborg
Bæjarfulltrúar D- og Á-lista sem skipa meirihluta bæjarstjórnar vilja þakka öllum þeim sem hafa komið að vinnunni og lagt ómetanlegt framlag til verksins. Gleðjumst yfir jákvæðri niðurstöðu en höldum áfram skýrri sýn á stefnuna að ná meiri árangri fyrir Árborg okkar allra.
Bragi Bjarnason, D-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, leggur fram eftirfarandi bókun:
Við rýni á fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir fjárhagsárið 2026, kemur í ljós að rekstur sveitarfélagsins fer versnandi, skuldir aukast milli ára ásamt því að gjöld í aðalsjóði hækka umfram tekjuaukningu. Innviðaskuld sveitarfélagsins eykst þar sem fjárfestingar halda ekki í við þjónustuþörfina. Í því sambandi má m.a. nefna uppbyggingu leikskóla sem er engan veginn í samræmi við fyrirliggjandi þörf fyrir leikskólapláss í sveitarfélaginu. Ekkert hefur borið á tekjuskapandi hugmyndum svo auka megi enn frekar við tekjur sveitarfélagsins.
Undirrituð vilja koma á framfæri þakklæti til starfsmanna sveitarfélagsins fyrir þeirra dýrmæta framlag við fjárhagsáætlunargerðina og margar góðar tillögur sem nýst hafa til að rýna rekstur Sveitarfélagsins Árborgar enn frekar.
Undirritaðir bæjarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2026.
Undir þetta skrifa:
Arnar Freyr Ólafsson, B-lista
Ellý Tómasdóttir, B-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista