Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 160
Annað
Fyrirspurn
Guðmundur Árni Þórðarson hönnuður fyrir hönd Lúðvík Fasteignafélag ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 411,2m² og 1.469,6m³. Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samærmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt