Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 160
Annað
Fyrirspurn
Helga Guðrún Vilmundardóttir hönnuður fyrir hönd Andra Guðnýjarsonar sækir um leyfi til að byggja einbýli. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 158 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna. Helstu stærðir eru; 357,6m² og 1.481,7m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Brunavarna Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt

801 Selfoss
Landnúmer: 206364 → skrá.is
Hnitnúmer: 10110315
Deiliskipulag
Tjarnabyggð í Kaldaðarnesi
Samþykkt 12.04.2006 · Deiliskipulag. Nýtt DSK