Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 61
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 49. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. liður 2. Ástjörn 13 - Deiliskipulagsbreyting 2025.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi fyrir Ástjörn 13 á Selfossi, sem samþykkt var í bæjarráði 9.3.2005 með síðari breytingum. Breytingin felur í sér að skilgreindur verði byggingarreitur fyrir bílgeymslu með fjórum bílskúrum við norðaustur horn lóðar. Stærð byggingarreits verður 18 x 7 m með hámarkshæð 4 m.
Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi, þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá gildandi deiliskipulagi telur skipulagsnefnd að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og er því ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

800 Selfoss
Landnúmer: 200957 → skrá.is
Hnitnúmer: 10003875
Deiliskipulag
Ástjörn 9-13
Samþykkt 09.02.2005 · Deiliskipulag. Nýtt DSK