Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 61
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 49. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. liður 1. Fossnes svæði 80- Sláturfélag Suðurlands - Skipulagslýsing v. ASK.br og nýtt DSK.
Landform ehf f.h. Sláturfélags Suðurlands leggur fram skipulagslýsingu sem tekur til breytingar á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 ásamt nýju deiliskipulagi fyrir iðnaðarlóð í landi Fossness. Skipulagssvæðið nær til um 10,6 ha. svæðis sem nær yfir tvær lóðir Sláturfélagsins. Annars vegar er um að ræða lóð sláturhússins, sem er 9,6 ha. að stærð og hins vegar lóð Bjargs, sem er um 1 ha. að stærð. Innan skipulagssvæðis er að finna verslunar- og þjónustureit (VÞ5), iðnaðarsvæði (I2) og opið svæði (OP1) sem er útivistarsvæði meðfram Ölfusá en nær inn á báðar lóðir Sláturfélagsins. Í fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu er gert ráð fyrir breytingu á landnotkun. Fyrirhugað er að byggja nýja afurðarstöð vestan og norðan við núverandi sláturhús. Gert er ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000 m2, þar sem 2000-2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Á lóð Bjargs eru núverandi starfsmannahús og er gert ráð fyrir fjölgun þeirra. Núverandi aðkoma að báðum lóðum er frá Suðurlandsvegi en í tengslum við nýja afurðastöð er lagt til að aðkoma að lóð sláturhússins verði frá Nesmýri og núverandi aðkoma frá Suðurlandsvegi verði lögð af. Í deiliskipulagi verður auk byggingaráforma gerð grein fyrir hreinsun og hreinsibúnaði frá afurðastöð og nýju hreinsivirki.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Árborgar að samþykkja framlagða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulag
Samþykkt 14.04.2016