Fyrirspurn
Velferðarnefnd samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 6. mars 2025 erindisbréf samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og lagði til við bæjarráð að hópurinn yrði stofnaður. Velferðarnefnd lagði enn fremur til að sveitarfélagið segði sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Á 121. fundi bæjarráðs sem haldinn var 21. mars 2025 lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréf hópsins, að kjósa formann samráðshópsins og samþykkja að Sveitarfélagið Árborg segi sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Fulltrúar í samráðshópnum eru:
Helga Lind Pálsdóttir D-lista, aðalmaður
Sveinn Ægir Birgisson D-lista, aðalmaður
Ellý Tómasdóttir B-lista, aðalmaður
Brynhildur Jónsdóttir D-lista, varamaður
Kjartan Björnsson D-lista, varamaður
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista, varamaður
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að Sveitarfélagið Árborg segi sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Lagt er til við bæjarstjórna að samþykkja erindisbréf hópsins og kjósa formann samráðshópsins.