Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 53
Annað
Fyrirspurn
Eftirfarandi er lagt til: Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.225.000.000,- á árinu 2025 með þeim lánaskilmálum sem bjóðast á þeim tíma sem lántaka fer fram.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana eldri lána sveitarfélagsins hjá Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir þörfum hverju sinni.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.