Fossnes 5B
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 61
Annað
Fyrirspurn
Eftirfarandi var lagt fram og bókað í bæjarráði á 137. fundi bæjarráðs. 24. júlí sl.:
Lögð eru fram drög að kaupsamningi þar sem GTS ehf. kaupir lóðina Fossnes 5, L188988, af Sveitarfélaginu Árborg. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja sölu lóðarinnar í samræmi við framlagðan kaupsamning. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja kaupsamninginn.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum bæjarfulltrúa D- og Á- lista. Bæjarfulltrúar B- og S- lista sitja hjá.

800 Selfoss
Landnúmer: 188988 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116273
Deiliskipulag
Samþykkt 14.04.2016