Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 129
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Fortis ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 128. Helstu stærðir eru; 364,7m² og 1.542,2 m³.
Svar

Byggingarfulltrúi synjar umsókn um byggingarleyfi, þar sem teikning gefur til kynna að hægt verði að nýta matshluta 0102 sem tvær aðskildar „íbúðareiningar“ með tveimur aðskildum inngöngum.
Í gildandi deiliskipulagi í gr. 5.1. kemur fram eftirfarandi: „Í einbýlis-,par- og raðhúsum skal vera ein íbúð í hverju húsi. Ekki er heimilt að hafa aukaíbúð á lóðum“.
Hafnað