Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 114
Annað
Fyrirspurn
Heba Hertervig hönnuður fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna leggur fram breytta aðaluppdrætti til yfirferðar vegna breytinga innanhúss á matshluta 14 á Litla Hrauni. Umsóknin var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 111 og var samþykkt breytingar tengt mhl 01 & 07. Um er að ræða fyrsta áfanga í gagngerum endurbótum og uppbyggingu á Litla-Hrauni.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir eldvarnareftirlits B.Á. vegna brunahönnunar og athugasemdir byggingarfulltrúa . Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt