Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 111
Annað
Fyrirspurn
Heba Hertervig hönnuður fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna sækir um leyfi til breytinga innanhúss á matshluta 01 og 07 ( hús 2 og 5) á Litla Hrauni. Rifin er viðbygging við matshluta 1 og húsið fært nær upprunalegu útliti. Umsóknin var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 110 og var málinu þá frestað. Um er að ræða fyrsta áfanga í gagngerum endurbótum og uppbyggingu á Litla-Hrauni.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir eldvarnareftirlits B.Á. vegna brunahönnunar og athugasemdir byggingarfulltrúa . Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt