Síðast Vísað til skipulagsfulltrúa á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 78
Annað
Fyrirspurn
Michael Blikdal Erichsen hönnunarstjóri f.h. Lindu Sólbjargar Ríkarðsdóttur sækir um leyfi til að flytja eldra hús af næstu lóð (Ránarbakka) yfir á lóðinna Marbakka og byggja tengibyggngu milli húsanna. Helstu stærðir viðbyggingar 79,4 m2 og 200,5 m3.
Svar

Áformin hafa verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 13. júlí 2021. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti erindið á 73. fundi og vísaði erindinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að tekið verði tillit til athugasemda byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.