Síðast Vísað til skipulagsfulltrúa á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 73
Annað
Fyrirspurn
Bygingaráform hafa verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 13. júlí 2021.
Svar

Ein athugasemd barst á tíma grenndarkynningar. Athugasemd snýr að tengibyggingu milli núverandi húss og fyrirhugaðrar stækkunnar. Í athugasemd er lagt til að tengibygging verði stytt til muna eða henni sleppt og húsin tvö látin standa ótengd. Skipulags- og byggingarnefnd tekur ekki undir framkomna athugasemd, ekki eru fordæmi fyrir tveimur stakstæðum frístundahúsum á sömu lóðinni á umræddu svæði. Byggingarmagn rúmast vel innan lóðar og er í ágætu samræmi við núverandi byggingar. Skipulags- og byggingarnefnd vísar erindi til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða.