Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 53
Annað
Fyrirspurn
Smáragarður ehf. sækir um leyfi til að byggja vindfang við norðurhlið núverandi verslunarhúss Byko. Umsóknin var áður á dagskrá 48. fundar. Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og fengið afgreiðslu skipulagsnefndar. Brúttóstærðir 100,0 m2 og 630,0 m3.
Svar

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1
Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tekið hefur verið tilliti til athugasemda eldvarnareftirlits B.Á. og eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlit hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða
- Ábyrgðaryfirlýsing byggingarstjóra og staðfesting starfsábyrgðartryggingar
- Ábyrgðaryfirlýsingar iðnmeistara.