Smáragarður ehf.
sótti um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir byggingu vindfangs við verslunarhús BYKO. Á 48. fundi Afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa var erindinu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem á 51. fundi var ákveðið að grenndarkynna áformin fyrir nágrönnum sem kynnu að hafa hagsmuna að gæta. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir byggingaráformin.