framkvæmdaleyfi
Laugalækur og Hrísateigur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 777
12. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 8. maí 2020 um framkvæmdaleyfi vegna endurgerðar á gatnamótum Laugalækjar og Hrísateigs, niðursetningu djúpgáma í Hrísateig og endurnýjun lagna og niðursetningu nýrra lagna. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í apríl 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.